Ert þú kominn með nóg af jólunum og öllu umstanginu í kringum þau? Komdu þá á Verbúðina og gleymdu þér eina kvöldstund og hlýddu á smá glens. Gott að fá sér einn öl eða jafnvel kokteil kvöldsins, tvöfaldan landa í sjó með myntu og appelsínuberki. Eyþór er fimm barna faðir og ætlar að flýja heimilið eina kvöldstund og fara með gamanmál. Hann hefur farið um allt land síðasta árið með uppistandssýninguna Spássitúr . Nú ætlar hann að flytja nýtt efni ásamt gömlu góðu inn á milli. Miðaverð er stillt í hóf aðeins 2500 kr og allur ágóði rennur í tannréttingar hjá barni númer 3.